|
|
02.10.2006 09:32:32 / danski
Jæja núna er að verða komið ár síðan við byrjuðum á þessum kúr,
ég hef ekki alveg haldið mér við þetta matarræði, en hef samt
ekkert þyngst og er samt ófrísk komin 23 vikur í dag. Begga gegnur
alltaf jafn vel að halda sér, en leyfir sér samt alltaf um helgar
einhvern ósið 
Ég er að setja inn nýjustu myndirnar og breyta ætla að gera sér
albúm fyrir Begga og sér fyrir mig. Endilega kíkið á myndirnar.
Ætlum að vera duglegri að blogga héðan í frá.
Kveðja Erla Hanna bumbulína
»
10.07.2006 17:08:47 / danski
Það ferlega langt síðan við blogguðum siðast .En allavega hefur
okkur gengið mjög vel nu er maður farin að leyfa ser að fá ser
eitthvað á laugardögum þannig að maður heldur ser um 90 kíló sem er
bara fint .og er byrjaður að æfa og er allur að massast upp en er í
smá vandræðum með húðina pinumikið of stór en ef einhver hefur
gott ráð við að draga hana samann þá eru öll ráð vel þegin reyni
svo að vera duglegri við að blogga kv Beggi
»
17.04.2006 20:48:41 / danski
jæja gott fólk takk fyrir allan stuðningin met hann mikils
það er nu ekki mikið að fretta nema að eg fór ekki í viktun á
síðasta miðvikudag vegna vinnu (léleg afsökun) en allavega þá
virðist eg standa í stað en vonandi verður góðar tölur á næsta
miðvikudag en páskarnir hafa verið fínir hef ekkert svindlað og
ekkert páska egg það kemur bara á næsta ári
takk fyrir kv Beggi
»
05.04.2006 16:20:40 / danski
JÆJA gott fólk
Nyjar tölur eru það fór 1,5 kíló þessa viku þannig að eg er nuna
86,4 sem þyðir að eg verð kannski útskrifaður í næstu viku ef vel
gengur
kv beggi
»
03.04.2006 13:48:19 / danski
Jæja gott fólk, helgin var ekki alveg að gera sig hjá mér. Ég
fór í fermingarveislu á sunnudaginn og það var matur. Ég svindlaði
reyndar ekki í honum fékk mér minn skammt af grænmeti og kjöt og
kartöflur og rjómalausa sósu. En síðan kom eftirrétturinn og það
var frönsk súkkulaði kaka með rjóma namminamm og ég stóðst ekki
mátið, fékk mér litla sneið en samviskan var líka alveg að fara með
mig í gærkveldi. En ég held að ég væri samt búin að gefast upp
fyrir löngu síðan ef að ég svindlaði aldrei. Annað en kallinn minn
hann hefur aldrei svindlað neitt, enda sést það á hans tölum. En
fólk er misjafnt.
Núna er ég komin á fullt í ræktinni, fer 3svar í viku og það
gengur bara vel. Og núna hef ég sett mér það markmið að missa
500gr - 1kg á viku, og verð þá vonandi búin að ná settu marki fyrir
sumarlok, en það eru alveg 11-14 kg í það.
Kjúklingaréttur-uppskrift
rifið niður 120 gr kjúkling (soðinn/steiktan)
BBQ sósa í pott ca 3-4 msk
1-2 tsk karry samanvið
1/2 dós sýrður rjómi
fjörmjólk eftir þörfum
Borið fram með hvítlauksbrauði og brúnum hrísgjrónum, þetta er
algjört lostæti
Prufiði þennan rétt,
kveðja Erla Hanna
»
30.03.2006 19:18:29 / danski
Langar svo að deila því með ykkur hvað þessi dagur í dag var
góður. Gott veður, gott skap.
Við ákváðum að grilla í kvöld, grilluðum okkur svínakjöt,
kartöflur, sveppi og papriku. Þetta var alveg rosalega gott. Við
bjuggum okkur til alveg geggggggjaða sósu úr sýrðum rjóma, BBQ
sósu, salsa sósu og kryddi. Höfðum með þessu kál og gúrku.
Kveðja Beggi 87,9 kg & Erla Hanna 76,5 kg
»
29.03.2006 16:58:14 / danski
Jæja góðir hálsar, í dag eru sko nýjar tölur.
Beggi er búinn að missa í heildina 27,4 kg og er því 87,9 kg
Erla Hanna er búin að missa 17,9 kg í heildina og er því
76,5 kg
p.s. búin að ferma elsta grísinn og nú er bara að hella sér
aftur í dönsku dagana.
Kveðja EHH & ÞSÓ
»
24.03.2006 15:03:14 / danski
sæl
Eg vildi bara segja frá nyjum tölum sem eru 24.7 kíló farin
þannig að eg er orðin 90.6 sem er nokkuð gott held eg
kv Beggi
»
13.03.2006 19:56:19 / danski
Komiði sæl aftur
Ég er búin að vera svo rosalega upptekin sl tvær vikur að ég hef
ekki einu sinni tíma til þess að setjast við tölvuna. Ég og
saumaklúbburinn minn vorum að halda grímuball sem komu u.þ.b. 80
manns á og ég var mjög mikið í undirbúning. Nú síðan erum við Beggi
að fara ferma 26 mars, og ég er bara alveg á haus að undirbúa það
líka. En eftir ferminguna ætla ég mér að vinda mér aftur í þetta
blogg og skrifa sko á hverjum degi, en það verður gloppótt fram að
því því miður.
Mér gengur samt engu að síður vel, fór reyndar aðeins upp í
síðustu mælingu en ég vil meina að það sé vegna blæðingar og vegna
þess að núna hef ég hellt mér út í leikfimi (er að lyfta á fullu),
en maður á samt ekki að vera með neina afsakanir, þannig að
.....svona er bara lífið.....
Jæja þarf að far að baka meira
heyrumst allavega á miðvikudaginn með nýjar tölur
Kveðja EHH
»
09.03.2006 18:51:39 / danski
Nyjar tölur eru að eg (beggi) er buinn að léttast um 23.5
kíló
takk fyrir
kv beggi
»
07.03.2006 22:52:14 / danski
Sælt veri fólkið, og takk kærlega fyrir stuðninginn........
Þannig er málið að ég greindist með sykursýki (týpu
2) fyrir nokkrum árum og hef þurft að sprauta mig með insúlíni
sl 5-6 ár u.þ.b. 7 sinnum á dag. Eins og fylgikvillar sykursýki eru
þá var ég stöðugt þreyttur, slappur og illa fyrirkallaður alla
daga. Ég var 118 kg og leið mikið illa. Síðan kynnist ég DDV og það
höfðaði bara mikið til mín. Ég byrjaði að léttast mikið hratt og
hef núna síðan 26 október misst rúmlega 22 kg.
Ég fór til sykurlæknis míns fyrir 3 vikum og hann fyrir það
fyrsta þekkti mig ekki og sagði síðan við mig að ég væri komin með
langtímasykur eins og maður sem ekki hefði sykursýki (5,9 moll),
sem er bara frábært.
Ég er hættur að vera slappur og þreyttur alla daga, og er sem
betur fer ekki í neinum áhættuhóp lengur. Ég hef farið úr XXL í
bolum og skyrtum niður í L og buxnastærð mín hefur minnkað úr 42/44
niður í 34.....sem er bilun
Ég vil enn og aftur þakka ykkur stuðninginn
Kær kveðja Beggi
p..s nýjar tölur á morgun 
»
15.02.2006 16:48:05 / danski
Jæja eftir síðustu vigtun átti ég að fá
verðlaun þar sem 15 kg höfðu fokið fyrir fullt og allt. Mig
hefur alla tíð langað til að eignast gallabuxur en aldrei
verið fín í þeim. því ég hef þurft svo stórt um magan ef ekki
eins mikið yfir rass og læri. Hér áður var ég alltaf í stærð
20 en fór síðan í Smáralind og langaði að prufa að máta
gallabuxur. Ég var búin að setja það markmið að komast í stærð
14, 1 mars og ætlaði að reyna að láta það takast.......en viti
menn ég passaði í buxur nr 14 og er ekkert smá fín í þeim, þær
poka ekki neitt yfir rassinn og lærin en eru VEL VEL VEL
þröngar yfir vömbina en ekkert óþægilegar eða ljótar. En síðan
var vigtun í dag og það fóru 400 gr (það er allavega niður, þó
það sé ekki mikið) Þannig að staðan er 15,5 í mínus hjá mér
núna og er ég bara alveg alsæl með það. Takk fyrir commentin
þetta skiptir öllu Kveðja Erla Hanna
Ég í gallabuxunum (feb'06)
En
svona var ég áður (okt'05)

»
08.02.2006 12:48:34 / danski
Jæja gott fólk, þá er ég komin niður fyrir 80 kg orðin aðeins
78,6 og skammast mín ekkert fyrir að segja töluna hér. Búin að
missa 15,1 kg á15 vikum. Beggi er búinn að missa 21,5 kg og nú
skulda ég honum eitt stykki Husqvarna mótorhjól Veit ekki alveg
hvernig ég fer að því............ en læt á það reyna.
Takk fyrir öll commentin við síðustu færslu, þetta hvetur mann
mikið og er mjög gaman að sjá hvað fólk er duglegt að skoða og
skrifa.
Nóg í bili
Kveðja Erla Hanna og Beggi
»
04.02.2006 17:19:42 / danski

Hér eru komnar nýjar myndir af okkur, það er rosalegur munur að
sjá. Endilega kíkið á myndirnar fyrir og eftir inn á myndir
Beggi-Erla. Svo væri líka rosalega gaman að sjá einhverja kvitta í
gestabókina okkar.
Ég hef ákveðið að prufa í dálítinn tíma að skrifa daglega hér
inn á síðuna okkar, svo endilega kíkið inn.
Kveðja Erla Hanna
»
02.02.2006 19:35:06 / danski
Hæ hæ
Nú eru nýjar tölur eins og alla aðra miðvikudaga í okkar lífi
(þessa daga).
Beggi er búin að missa 19,9 og ég 13,6, núna er sko engin
miskunn, ferming framundan og ég verð að missa allavega 5 kg fyrir
26 mars...... skildi það takast?
Hvað haldi þið????
jæja nóg í bili
kveðja Erla Hanna
»
Síður: 1 2
|
|